Arna bloggar um allt og ekkert ...

Tuesday, October 03, 2006

Flutt ? ? ?

Þessi síða er hér með formlega lokuð !! Hún mun lifa í hjarta mínu eins og allt annað :) !!
Allaveganna í bili ætla ég að flytja allt mitt blogg yfir á "myndasíðuna" sökum þess hvað Blogger ! er ekki að gera góða hluti !! alltaf að henda færslunum mínum og vera með almenn leiðindi.
Bloggið mitt er sumsé flutt þar til annað kemur í ljós

Takk kærlega fyrir mig blogger!! ég á eftir að sakna þín
e.s. aldrei að vita hvort við sættumst seinna og leið mín liggi aftur að þessari síðu
En þangað til getið þið breytt ykkar linkum kæra fólk því síðan er flutt
Adios!!

Foookk

hvað ég er þreytt!!!

Monday, October 02, 2006

Skólausir skátar á Bessastöðum



Vill byrja á að óska Hemma, Huldu og félögum til hamingju með þetta

- Ekki slæmt þetta -

En ég fór í bjartsýniminni af stað í dag í þeim tilgangi að kaupa mér góða skó fyrir ræktina í hlaupin og hasarinn þar sem mínir gömlu mega nú alveg missa sig

Fer á þessa alveg 3 staði á ísafirði þar sem skór í þessum tilgangi eru seldir og annaðhvort voru þeir mjög ljótir og skrautlegir eða bara til í stærðum 25-35 og 40 og uppúr ...hvað er málið með það !! Svo er sagt að maður eigi að versla meira í sínum heimabæ ....en ef heimabærinn býður ekki uppá það að maður versli þar!

Þannig að núna ætla ég hin "skólausa" að versla mér skó fyrir sunnan - er ekki sátt við úrvalið hér á bæ þar sem skóstærðin mín 37 og 38 fæst ekki í íþróttaskóm!

En litli prins hennar Estherar er kominn með síðu á barnalandi ....YNDISLEGUR eins og alltaf - sakna ykkar mikið mikið !!

Saturday, September 30, 2006

Óvissuferð NMÍ

  • Hófst á planinu hjá Guðmundabúð í gærdag
  • töskunum hent í rúturnar og plantað sér í góð sæti í réttum rútum
  • fyrirlestur frá skólameistara - sem notabene sagði óbeint hvert ferðinni væri haldið með því að segja okkur að jón hefði vínveitingaleyfi og því mættum við ekki koma með okkar eigið áfengi né versla hjá honum. Hún bað okkur líka um að fara varlega í kringum hverina því þetta væri mikið hverasvæði. hmmm...hvar á vestfjörðum eru hverir ...Reykjanes og ??
  • Keyrðum af stað
  • Gítarinn stilltur þegar við renndum inn í súðavík og samkv. hefð byrjaði gítarglamur og söngur þegar komið var út fyrir Súðavík
  • Mikið fjör, mikið grín og mikið gaman á leiðinni
  • Komum í Reykjanes suprise suprise og dótinu komið fyrir í svefnpokaplássinu og nemó fékk "svítu" sem kom sér ágætlega fyrir okkur sníkjudýrin sem gistum í kuldanum í draugaherberginu.
  • Grillaðir borgarar og drukkið gos
  • Tónlist og góður fílingur
  • Við stúlkurnar tókum forskot á sæluna og gerðum plan varðandi sundið - meðan aðrir luku við máltíð sína fórum við stöllur upp á herbergi og náðum í sundfötin okkar, þegar fólk fór svo að tala um að fara kannski að skella sér í sund þá fórum við beinustu leið í sundklefana og skelltum okkur í sundið
  • Sundlaugin var þara þakin og geðsleg
  • Stemmning í lauginni - hlegið, sungið, dansað, kafað, fíblast, trúnó, slúðrað og allt þetta vanalega sem fylgir ferðunum =)
  • Fólk fór svo í sitthvora áttina eftir sundið - sumir að sofa, sumir að spjalla og hanga og við vorum nokkur sem vorum að tala saman frammá gangi til 6 í morgun og við Ásthildur lögðumst ekki til hvílu fyrren að verða 7
  • VAknað í dag við mikil læti í æstum einstaklingi sem vildi óður komast í sund og vildi fá einhvern með sér í þann gjörning
  • Tekið til og myndað alla svona ferska árla morguns
  • Borðarar samlokur a la Reykjanes
  • Lagt af stað heim kl. 12:54

Takk fyrir frábæra ferð NMÍ og óvissuferðarferðalangar

- Myndir úr óvissuferðinni koma inná myndasíðuna í kvöld eða á morgun -

Allir að fara inná missworld.com og kjósa Ásdísi Svövu fegurðardís!
Gangi þér vel á eftir Ásdís mín, kveðjur úr heimabænum

Wednesday, September 27, 2006

Takk fyrir reddið


Takk æðislega fyrir reddinguna elsku bestasta Edtih mín !! Þú ert manneskja vikunnar hjá mér !:)

En jæja þá fer að líða að MissWorld keppninni í Póllandi þar sem okkar kæra æskuvinkona og fyrrv. bekkjarsystir er að keppa í fyrir hönd Íslands enda algjör bjútíquen þar á ferð :)

Í tilefni þess verður hittingur hjá hringborðinu - verður mega kvöld !

Gangi þér sem allra best elsku Ásdís okkar !
Allir að vera duglegir að kjósa dísina á missworld síðunni ...! :)

Tuesday, September 26, 2006

Átt þú bókina ?

Ég skal sko segja ykkur það !
AUGLÝSI HÉR MEÐ EFTIR EINHVERJUM SEM Á BÓKINA
A Propos II
- Vantar semsagt vinnubók og lesbók !!

Monday, September 25, 2006

3 litlir frændur á fjórum dögum!


Já það eru ekki margir sem geta sagt það, en ég eignaðist semsagt 3 litla frændum á fjórum dögum! 21, 23 og 24 september - allt strákar, stórmyndarlegir prinsar ....=)

Til hamingju með strákinn Siggi og Sirrý
Til hamingju með strákinn Svanhildur og Raggi

Til hamingju með yndislega prinsinn elsku Esther mín, þú ert algjör hetja!! Litli gullmolinn er yndislegur ....=) Ég kíkti í heimsókn til þeirra mæðgina í gær og mig langaði eiginlega bara að taka hann með mér heim, langaði ekkert að fara frá þeim hann er svo yndislegur .....:) Tók helling af myndum af honum og ég set kannski eina hérna inn í dag þegar ég er búin að setja þær inn í tölvuna. Hlakka til að sjá ykkur næst !

En helgin var frábær í alla staði ! Keyrðum af stað á slaginu 13:00 á föstudaginn eftir mikinn hamagang og flýtigang rétt áður en lagt var í hann því takmarkið var sett á 13:00 !
Bílferðin gekk hratt og tíminn flaug! Kíkti í dinner til Dagnýjar sætu um leið og ég kom en því miður höfðum við planað ferðalag milli landshluta sömu helgina sem var svekkjandi en við sjáumst fljótlega aftur sæta mín :)
Hitti Ingu mína og "kom mér fyrir" í pleisinu hennar ....:) Ekkert djamm á föstudag en við létum það nú eftir okkur að djamma á laugardagskvöldið og lá leið okkar í Starfsmannapartý hjá yngri kynslóðinni í Debenhams og ég sem enga þekkti nema þá sem unnu með Ingu í herradeildinni , braut ég ísinn með því að brjóta glas, sem var að sjálfsögðu óviljandi en svona líka vandæðalegt ....en það var bara hlegið að því ...:) !
Kíktum líka í partý í Árbænum sem var fjörugt geim :)
Tók eitthvað af myndum en set þær inn á eftir

Lét fylgja með eina mynd af litlu dekurrófunni minni - prinsinum hennar Estherar - Gullmolinn minn ! ;*

Friday, September 22, 2006

Til lykke med drengen

Til hamingju Svanhildur og Raggi með litla prinsinn!!

Leggjum af stað á eftir klukkan 13:00
Esther var sett af stað í gær
ég er svo spennt!!
Páll Óskar í víkinni um helgina = Djamm
En ég verð í reykjavík
að djamma
og
skemmta mér
með liðinu þar
ég hlakka svo
til
bæbæ
elskurnar
við
bloggumst seinna